top of page
FullColor_1024x1024_72dpi.jpg

ÖLDUHVERFI

2019 - Opið

Jörðin Kroppur liggur að Hrafnagilshverfi þar sem aðal þéttbýli sveitarfélagsins hefur byggst upp í landi sveitarfélagsins.  Þar er öll þjónusta sveitarfélagsins:  Leik-, grunn- og tónlistarskóli, íþróttahús og sundlaug ásamt með skrifstofu sveitarfélagsins.  Þar við bætist félagsheimilið Laugarborg og þar og í  húsnæði sveitarfélagsins er aðstaða til margskonar félagsstarfs og samkomuhalds.


Einnig er stutt í Kristnes þar sem ýmiss þjónusta tengd sjúkrahúsinu á Akureyri hefur verið í uppbyggingu. Það er því mögulegt að frekari uppbygging í nánd við Hrafnagil geti nýst þeim sem kunna að sækja sér þjónustu á Kristnes í framtíðinni.


Það er því kjörið að reisa nýtt 212 íbúða hverfi á þessum stað við hlið Hrafnagilshverfis, í göngufæri við þjónustu sveitarfélagsins og með góða og greiða tengingu við Akureyri með þjóðvegi og göngu- og hjólastíg.

Ölduhverfi: Project
Ölduhverfi: Welcome

©2020 by Hamrar Byggingarfélag ehf. 
Tölvupóstur: Hamrar@hamrarbygg.is - Símanúmer 892-2244

bottom of page